Sýslumaðurinn á Suðurlandi - Leiguhúsnæði
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi sýslumanns á Selfossi.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til allt að 15 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um þegar byggt húsnæðiH, æskilegt er að rými verði á einni hæð. Húsnæðið skal vera staðsett á Selfossi, innan þéttbýliskjarna og í nálægð við almenningssamgöngur. Kostur ef húsnæðið er staðsett í nálægð við aðra þjónustustarfsemi. Aðgengi skal vera gott þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi og næg bílastæði.
Húsrýmisþörf er áætluð um 600 fermetrar.
Að markaðskönnun lokinni verður tekin ákvörðun um hvort auglýst verður eftir húsnæði eða hvort gengið verði til samninga um leigu á húsnæði á grundvelli þessarar markaðskönnunar.
Afhendingartími húsnæðis er innan 6-12 mánaða frá undirritun leigusamnings eða fyrr.
Aðrar kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is þriðjudaginn 15. apríl 2025.
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húsnæðis og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.
Frekari gögn má nálgast hér:
Húslýsing: Húslýsing
Tilboðsblað til útfyllingar: Tilboðsblað
Fyrirspurnir varðandi verkefnið Sýslumaðurinn á Suðurlandi, skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 30. apríl 2025 en svarfrestur er til og með 5. maí 2025.
Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 þriðjudaginn 20. maí 2025.
Merkja skal tilboðið; nr. 6330205 – Sýslumaðurinn á Suðurlandi – Leigu-húsnæði
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr.
Útboðsnúmer: 6330205
Fyrirspurnarfrestur: 30.4.2025
Opnun tilboða: 20.5.2025