Eldri fréttir FSR (Síða 8)

17. janúar 2019 : Skráning á Útboðsþing Samtaka Iðnaðarins í fullum gangi

Það styttist í hið árlega Útboðsþing Samtaka iðnaðarins þar sem fyrirhugaðar framkvæmdir helstu opinberra framkvæmdaaðila eru kynntar. Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri FSR, verður með kynningu á verkframkvæmdum ríkisins.

Lesa meira

9. janúar 2019 : Fjórir nýir starfsmenn hjá FSR

Framkvæmdasýsla ríkisins hefur fengið til liðs við sig tvo nýja verkefnastjóra á sviði frumathuguna og áætlunargerðar, einn á fagsvið verklegra framkvæmda og skilamata og loks teymisstjóra greininga og stefnumótunar sem er nýtt starfssvið innan FSR. 

Lesa meira

2. janúar 2019 : Hvaða steinsteypta mannvirki verður mannvirki ársins árið 2019?

Steinsteypufélag Íslands óskar eftir tilnefningum til Steinsteypuverðlaunanna 2019 til 20. janúar næstkomandi.

Lesa meira

19. desember 2018 : Jólakveðja frá FSR

FSR óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári. Skrifstofa FSR verður opin 27. og 28. desember yfir jól og áramót. Reglulegur opnunartími hefst svo á ný miðvikudaginn 2. janúar. 

Lesa meira

19. desember 2018 : Opnun tilboða í fornleifagröft á lóð við stjórnarráðshúsið

Tvö tilboð bárust í verkefnið lóð við stjórnarráðshúsið, Lækjargötu 1 - fornleifagröftur. 

Lesa meira

17. desember 2018 : Fyrirhugað útboð á verkframkvæmd við varnarvirki í Norðfirði

Almennt útboð á framkvæmdum við varnargarð og 16 varnarkeilur neðan Urðarbotns og Sniðgils í Neskaupstað er fyrirhugað um mánaðamótin janúar/febrúar 2019.

Lesa meira

12. desember 2018 : Steinsteypudagurinn 2019

Hinn árlegi Steinsteypudagur á vegum Steinsteypufélags Íslands verður haldinn föstudaginn 15. febrúar 2019 á Grand Hótel.

Lesa meira

7. desember 2018 : Hringbrautarverkefnið - Framkvæmdafréttir

Inngangur Barnaspítala færður, vinna við lagnaskurð sunnan Barnaspítala, framkvæmdir við gamla spítala, bílastæði við Eirberg, endurbætur á bílastæðum við Eirberg, stækkun bílastæða við Læknagarð, framkvæmdir neðan Hringbrautar, verkskil sjúkrahótelsins og stefnt að lokun gömlu Hringbrautar 7. janúar 2019.

Lesa meira

6. desember 2018 : Sementsfestun fyrr og nú

Fyrirlestrar, myndir og umfjöllun um málstofu um sementsfestun sem Steinsteypufélag Íslands og Mannvit buðu upp á nýlega er nú aðgengileg.

Lesa meira

3. desember 2018 : Niðurstöður samkeppna um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið og um skipulag Stjórnarráðsreits

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag verðlaun fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og opnaði sýningu á tillögum í framkvæmdasamkeppni um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið og hugmyndasamkeppni um skipulag Stjórnarráðsreits í Safnahúsinu við Hverfisgötu. 

Lesa meira

29. nóvember 2018 : Hvað er vistvæn bygging?

Vistvæn bygging grundvallast á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar þar sem leitast er við að mæta þörfum samtíðarinnar án þess að skerða möguleika komandi kynslóða til að mæta sínum þörfum.

Lesa meira
Síða 8 af 24

Fréttalisti